Blair Lockhart
Verkefnastjóri Snorra West síðan 2020
Bresku-Kólumbía, Kanada
Blair á ættir að rekja til Íslands í gegnum móður sína, Heather Amundson Lockhart of Selkirk, Manitoba. Blair og móðir hennar tóku þátt í Snorra Plús árið 2012 - sem varð kveikjan að áhuga Blair á Íslandi. Hún hefur dálæti af prjónaskap, hefðbundinni íslenskri vínartertu og harðfisk. Blair er lögmaður að mennt, hún byrjaði samt feril sinn sem jarðfræðingur og hefur mikinn áhuga á steinum - sem er önnur ástæða til að elska Ísland! Sem lögmaður hefur Blair unnið sem saksóknari, en einnig sem ráðgjafi fyrir námuvinnslufyrirtæki og HSBC banka. Í dag starfar Blair sem framkvæmdastjóri hjá fylkisstofnun sem hefur eftirlit með veitufyrirtækjum í Bresku- Kolumbíu. Blair á tvö börn með eiginmanni sínum, Tony.
Blair var forseti CISV Kanada, sem er sjálfboðaliða hreyfing sem sérhæfir sig í að byggja alþjóðleg tengsl, vináttu og menntun hjá börnum sem vilja láta gott af sér leiða. Blair tók þátt í Vancouver hluta Snorra West árið 2019 og kom í verkefnastjórn Snorra West ásamt öðrum árið 2020. Hún hjólar í vinnuna, er með grænmetisgarð, er mikill lestrarhestur og reynir að ganga allavega 10.000 skref á dag.