Julie Summers
Fulltrúi Snorri Alumni Association síðan 2016
Julie er fædd og uppalin í Washington fylki. Hún starfaði sem sjálfboðaliði fyrir AmeriCorps og á skrifstofu sem sér um aðstoð og úrræði fyrir fólk með fötlun í stórum háskóla. Julie lauk BA gráðu í ensku áður en hún fór í Snorraverkefnið árið 2012 og kynntist þar með Íslandi og ættartengslum sínum til Íslands. Þegar Julie var í Snorraverkefninu gisti hún á Vestfjörðum hjá fjarskyldum ættingjum sem töluðu nánast enga ensku, vann í lítilli verslun og í fiskvinnslu. Eftir Snorraævintýrið hélt Julie áfram að læra íslensku á eigin vegum en fékk svo Fulbright styrk árið 2014 sem var að hluta til fjármagnað af menntamálaráðuneytinu. Í kjölfarið flutti Julie til Íslands og hóf nám í Háskóla Íslands. Hún útskrifaðist svo með BA gráðu í íslensku sem annað tungumál í maí 2017 og er að klára MA gráðu í þýðingafræðum frá Háskóla Íslands.
Julie hefur starfað sem blaðamaður og aðstoðarritstjóri fyrir Lögberg-Heimskringlu, einnig hefur hún unnið með Icelandic Roots í nokkur ár. Með námi og sem sjálfstætt starfandi þýðandi, ver Julie frítíma sínum í verkefni tengd Snorrasjóði og Snorri Alumni Association. Hún flutti nýverið til Þýskalands með eiginmanni sínum Jan, eftir sex ára dvöl á Íslandi.
Julie hefur verið í stjórn Snorrasjóðs síðan 2016.