The Snorri Program
  • Home
  • Programs
    • Snorri
    • Snorri Plus
    • Snorri West
  • Alumni
    • Alumni Internship
    • Snorri Alumni Association
  • About Us
    • Meet Our Team
    • Program History
    • Emigration Story
    • FAQs >
      • Snorri FAQ
      • Snorri Plus FAQ
      • Snorri West FAQ
  • Snorri Media
    • Snorri Photos
    • Snorri Plus Photos
    • Snorri West Photos
English
Picture

Ástrós Signýjardóttir

Varamaður í stjórn fyrir hönd Þjóðræknisfélag Íslendinga síðan 2014

Ástrós Signýjardóttir er fædd í Reykjavík, yngst fimm systkina. Hún bjó fyrstu æviár sín í Breiðholtinu en fluttist svo í Grafarvoginn þar sem hún bjó þar til hún fór að heiman. Eftir menntaskólann lá leiðin í hjúkrunarfræðinám við Háskólann á Akureyri en eftir einn vetur þar ákvað hún að breyta til og skrá sig í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, þaðan sem hún útskrifaðist með BA gráðu árið 2010. Eftir stjórnmálafræðina lá leiðin í meistaranám í alþjóðasamskiptum, sem lauk árið 2012. Ástrós hefur auk þess stundað framhaldsnám í þróunarfræði, en því er ólokið. 

Ástrós útskrifaðist með diplóma-og kennararéttindi í listdansi árið 2006. Samhliða bæði menntaskóla-og háskólanámi vann hún við danskennslu og þolfimikennslu. Auk þess sat hún í Ungmennaráði UMFÍ og sótti á þeirra vegum fjölda ráðstefna er vörðuðu málefni ungs fólks og framtíð þeirra, bæði í Evrópu og á Norðurlöndunum. Árið 2011 var Ástrós ein af 25 þjóðkjörnum einstaklingum sem tóku sæti í Stjórnlagaráði, sem lagði fram tillögu að nýrri stjórnarskrá landsins. 

Eftir útskrift frá Háskóla Íslands starfaði Ástrós m.a. sem verkefnastjóri hjá Unglingalandsmótum UMFÍ, sem flugfreyja hjá Icelandair í rúm tvö ár, við aðstoð auglýsingaframleiðslu hjá SagaFilm og Stórveldinu og svo tímabundið sem verkefnastjóri Snorrasjóðs í afleysingum. Í dag starfar Ástrós sem verkefnastjóri upplýsingaþjónustu norrænu ráðherranefndarinnar, Info Norden, sem hefur skrifstofu í húsnæði Norræna félagsins. 

Ástrós er gift Huga Halldórssyni, framleiðanda og viðskiptastjóra. Þau eiga saman 4 börn og eina kisu. Þau búa í Garðabænum og njóta þess að eyða tíma með fjölskyldunni sinni, ferðast, hreyfa sig og fræðast.

Árið 2013 leysti Ástrós af þáverandi verkefnastjóra Snorrasjóðs sem var í fæðingarorlofi og sjá um sumarverkefnin 2014. Sama árið tók hún sæti í stjórn og hefur gengt því embætti síðan.

​

The Snorri Programs

​Óðinsgata 7, 101 Reykjavík, Iceland 
(+354) 551-0165      
info@snorri.is
Facebook: The Snorri Programs
Instagram:  The Snorri Programs | Snorri Alumni
Logo for Icelandair
the Icelandic Government Coat of Arms
Logo for Icelandic Roots
Icelandic National League logo
the Icelandic National League of North America logoPicture
Icelandic National League of the United States logo
City of Reykjavík logo
Norænna Félagið logo
  • Home
  • Programs
    • Snorri
    • Snorri Plus
    • Snorri West
  • Alumni
    • Alumni Internship
    • Snorri Alumni Association
  • About Us
    • Meet Our Team
    • Program History
    • Emigration Story
    • FAQs >
      • Snorri FAQ
      • Snorri Plus FAQ
      • Snorri West FAQ
  • Snorri Media
    • Snorri Photos
    • Snorri Plus Photos
    • Snorri West Photos