Óðinsgata
7 |
|
|
|||||||||||
|
Heimasíða Ásta Sól
Kristjánsdóttir
Netfang Langar þig frekar að fara til Ontario? |
|
Langar þig til að ferðast til Kanada Ertu á aldrinum 18-25+ ára? Snorri West verkefnið veitir ungu fólki á aldrinum 18-25 ára tækifæri til þess að heimsækja ,,Nýja Ísland" í Kanada og kynnast þar menningu, tungumáli og sögu svæðisins. Allir þeir sem farið hafa tala um að hafa átt besta sumar lífs síns! Þetta fjögurra vikna sumarverkefni er frábært tækifæri til að kynnast vestur-íslenskri menningu, bæta enskukunnáttuna, kynnast öðruvísi starfsumhverfi, mynda ný vináttubönd, taka þátt í Íslendingadeginum, grilla og skemmta sér á ströndinni, versla og jafnvel hitta ættingja. Þó er alls ekki skilyrði að umsækjendur eigi ættingja í Vesturheimi. Innifalið í þátttökugjaldi er flug
fram og til baka, fullt fæði og húsnæði, námskeið,
allar ferðir innan Manitoba, o.fl. Búið er hjá fjölskyldum á mismunandi stöðum í
Manitoba-fylki. Því er mikilvægt að þátttakendur geti aðlagast nýjum
aðstæðum og tekið þátt í því sem fjölskyldan skipuleggur eftir því sem
við á. Þátttakendur taka einnig þátt í sjálfboðaliðadagskrá yfir hluta
tímans, eða sem samsvarar 2-3 klst á dag, Á þennan hátt kynnast
þátttakendur daglegu lífi betur og er þessi hluti skylda. Verkefnið er niðurgreitt (þ.e.a.s. styrkt) af Íslendingadeginum í Manitoba og borgar hver þátttakandi einungis um 2.200 Kanadadollara (CAD). Þrátt fyrir hækkað gengi er þetta verð mjög hagstætt! Það eina sem þú þarft að taka með
þér út eru smá vasapeningar og góða skapið! Umsóknarfrestur rennur út 18. mars
2010 Farið er út 9. júlí 2010 og flogið til baka 6. ágúst 2010 Vinsamlegast sendið umsóknareyðublöð til: The Snorri West Program eða fyllið út á www.snorriwest.ca,
eða þessum vef og sendið með tölvupósti Upplýsingar, bæklingar og aðstoð við útfyllingu á
umsóknareyðublöðum fæst einnig hjá info(a)snorri.is |