Óðinsgata
7 |
|
SNORRI WEST Í ONTARIO ATH! Aflýsa þurfti þessu frábæra verkefni árið 2008, óljóst er með sumarið 2009 |
|||||||||||
|
Netfang
Ásta Sól
Kristjánsdóttir
|
|
Langar þig til að ferðast til Montreal, Toronto og Ottawa?
Hefurðu áhuga á að styrkja böndin við Kanada? Langar þig að fara á Íslendingadaginn í Gimli?
Langar þig að kynnast skemmtilegu fólki?
Langar þig að upplifa eitthvað nýtt? Ertu á aldrinum 18-28 ára? Snorri West verkefnið hefur verið starfandi frá árinu 2001 og er nú orðið árvisst tilboð til ungra Íslendinga. Þátttakendur hafa verið mjög ánægðir með dvöl sína í Manitoba. Nú í annað sinn býðst ungu fólki á aldrinum 18-28 ára tækifæri til þess að kynnast öðrum slóðum í Kanada, en landið er annað stærsta land í heimi með tæplega 35 milljónir íbúa. Í þessu sex vikna sumarverkefni fá þátttakendur að kynnast stórborgunum Montreal, Toronto og höfuðborginni Ottawa. Einnig verður farið í "road-trip" á Íslendingahátíðina í Gimli í byrjun ágúst. Þetta er einnig frábært tækifæri til að bæta enskukunnáttuna, taka þátt í félagsstarfi hjá Íslendingafélögunum, mynda ný vináttubönd, sjá frábæra náttúru, versla og jafnvel hitta ættingja. Þó er ekki skilyrði að eiga ættingja sem flust hafa vestur um haf. Þessi ferð er einstakt tækifæri til að kynnast merkum og fögrum borgum, einstakri náttúru og menningarlífi, auk fjölþjóðlegri menningu í tengsl við þá íslensku. Ekki síst munu þátttakendur auka enskukunnáttu sína og mynda ný vináttubönd, svo ekki sé talað um mikið fjör! Verkefnið stuðlar að því að efla tengslin á milli Kanada og Íslands og er einmitt einn liður í verkefninu að kynnast og taka þátt í starfi Íslendingafélaganna á þeim svæðum sem ferðast er til. Þar sem búið er hjá fjölskyldum að mestu er mikilvægt að þátttakendur geti aðlagast nýjum aðstæðum, verið sveigjanlegir og jákvæðir. Verkefnið er niðurgreitt
af Friends of Iceland Ottawa og Scandia Housing Innnifalið í þátttökugjaldi er flug fram og til baka, fæði hjá fjölskyldum og húsnæði, skoðanaferðir og margt margt fleira, ferðir á vegum verkefnisins, o.fl. _________________________________________________ Frekari upplýsingar: Umsóknarfrestur rennur út 4. apríl, 2008 Brottför er 26. júní og flogið aftur heim 8. ágúst Vinsamlegast sendið umsóknareyðublöð í tölvupósti til Snorra West í Ottawa: thor@primus.ca (Völundur Þorbjörnsson, formaður Friends of Ottawa) Upplýsingar, bæklingar og aðstoð við útfyllingu á
umsóknareyðublöðum fæst einnig hjá info(a)snorri.is
Styrktaraðilar: |